Ferðirnar
Smelltu á ferð til að sjá liðin, leikina og myndirnar.
Ferðirnar í tölum
Samantekt á því sem er komið. Sundurliðunin er í töflunum hér fyrir neðan.
* Palmares er enn í gangi. Tölurnar eiga eftir að breytast.
Tölurnar hér að neðan uppfærast sjálfkrafa eftir því sem leikið er á Palmares.
Eilífðarlistinn
Hér er hver leikur einn og sami hluturinn, sama hvaða ár eða leikform: sigur = 1, jafntefli = 0,5. Þannig sést hver hefur staðið sig best, óháð því að einleikir gefa þrefalt á við tvíliðaleiki.
| # | Leikmaður | Unnir | Leikir | Hlutfall | Ferðir |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Kiddi | 22,5 | 29 | 78% | 4 |
| 2 | Bjössi | 17,5 | 29 | 60% | 4 |
| 3 | Arnar | 16,5 | 29 | 57% | 4 |
| 4 | Juddi | 16 | 29 | 55% | 4 |
| 5 | Pétur | 14,5 | 29 | 50% | 4 |
| 6 | Böddi | 9,5 | 22 | 43% | 3 |
| 7 | Steini | 9 | 21 | 43% | 3 |
| 8 | Jómbi | 7,5 | 25 | 30% | 3 |
| 8 | Himmi | 7,5 | 17 | 44% | 2 |
| 10 | Helgi | 6,5 | 22 | 30% | 3 |
| 11 | Gústi | 5 | 10 | 50% | 1 |
| 12 | Gauji | 4 | 10 | 40% | 1 |
Fylkir vs. ÍR
Lokakeppni ferðanna 2022–2025: Árbær gegn Breiðholti. Hún fer ekki fram á Palmares 2026 — Villa Masters kemur í hennar stað.
| Ár | Staður | Umf. | Árbær | Breiðholt | Úrslit |
|---|---|---|---|---|---|
| 2022 | La Sella | 4 | 8 | 16 | Breiðholt |
| 2023 | La Cala | 4 | 8 | 16 | Breiðholt |
| 2024 | Empordà | 3 | 7 | 13 | Breiðholt |
| 2025 | Infinitum | 5 | 12,5 | 11,5 | Árbær |
Breiðholt vann fyrstu þrjú skiptin — tvö þeirra með nákvæmlega sömu tölum — þar til Árbær braut ísinn á Infinitum með eins stigs mun, þeim naumasta sem mögulegur er.
Kapteinakeppnin
Tveir liðsforingjar velja sér í lið og raða í hollin leynilega. Haldin frá 2023.
| Ár | Liðsforingjar | Úrslit |
|---|---|---|
| 2023 | Böddi vs. Bjössi | Lið Bödda 13–11 |
| 2024 | Arnar vs. Jómbi | Lið Arnars 24–0 |
| 2025 | Steini vs. Kiddi | Lið Kidda 16–8 |
Empordà stendur eitt: lið Arnars vann alla tíu leikina og öll 24 stigin. Arnar, Kiddi, Bjössi og Juddi fóru allir í gegnum keppnina með fullt hús.
Herbergjakeppnin
Herbergisfélagar leika saman sem par. Haldin 2022 og 2023, féll niður 2024 og var lögð af — hún hentar illa þegar tólf manns eru í ferð.
| Ár | Sigurherbergi | Stig |
|---|---|---|
| 2022 | BB, ÞH og KA — jafnt | 4 |
| 2023 | BB — Bjössi & Böddi | 9 |
Bjössi og Böddi unnu síðustu herbergjakeppnina sem haldin var. Böddi hefur ekki talað um neitt annað síðan. Í þessu sniði kemur hún ekki aftur, en hugmyndin lifir í Villa Masters hér fyrir neðan.
Villa Masters
Íbúð gegn íbúð, sex menn hvoru megin. Arftaki herbergjakeppninnar í sniði sem gengur upp með tólf manns. Fyrst haldin á Palmares 2026.
| Ár | Íbúðirnar | Úrslit |
|---|---|---|
| 2026 | Palmares | Ekki hafin |
Mannskapurinn
| Leikmaður | Fullt nafn | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | 2026 |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Bjössi | Björn Gunnarsson | ✓ | ✓ | ✓ | ✓ | |
| Juddi | Jörundur Matthíasson | ✓ | ✓ | ✓ | ✓ | |
| Kiddi | Kristinn Friðriksson | ✓ | ✓ | ✓ | ✓ | |
| Arnar | Arnar Másson | ✓ | ✓ | ✓ | ✓ | |
| Pétur | Pétur Þórarinsson | ✓ | ✓ | ✓ | ✓ | |
| Böddi | Böðvar Kristinsson | ✓ | ✓ | — | ✓ | |
| Helgi | Helgi Örn Viggósson | ✓ | ✓ | — | ✓ | |
| Steini | Þorsteinn Finnbogason | ✓ | — | ✓ | ✓ | |
| Jómbi | Jón Másson | — | ✓ | ✓ | ✓ | |
| Himmi | Hilmar Hákonarson | — | — | ✓ | ✓ | |
| Gauji | Guðjón Tómasson | — | — | — | ✓ | |
| Gústi | Ágúst Auðunsson | — | — | — | ✓ |
Stigagjöfin
Jafntefli (AS) skiptist. Þegar hópurinn stækkaði úr átta í tólf fjölgaði umferðunum úr fjórum í fimm og leikjunum úr tíu í átján — og stigin á hvern leik voru lækkuð að sama skapi, svo pottur hverrar keppni héldist óbreyttur í 24 stigum.
| Hópur | Tvíliðaleikur | Einleikur | Leikir | Pottur |
|---|---|---|---|---|
| 8 manns · 2022–2024 | 2 stig | 3 stig | 6 + 4 | 24 |
| 12 manns · 2025– | 1 stig | 2 stig | 12 + 6 | 24 |
Golf GameBook gefur alltaf eitt stig á leik og sýnir því aðrar tölur en þær réttu.