Leikir unnir
Sigur = 1, jafntefli = 0,5. Sama hvaða keppni eða leikform.
Kapteinakeppni Palmares 2026 · Leikstjóri hefur síðasta orðið.
Dagskrá
Keppnin er fimm leikir á þremur dögum. Tvö lið, sex leikmenn í hvoru. Einliðaleikurinn á lokadegi gildir helming stiganna.
| Dagur | Leikur | Leikform |
|---|---|---|
| Dagur 1 | Leikur 1 | Betri bolti, holukeppni (18 holur) |
| Dagur 1 | Leikur 2 | Greensome (9 holur) eða betri bolti (18 holur), ákveðið á leikdegi |
| Dagur 2 | Leikur 3 | Betri bolti, holukeppni (18 holur) |
| Dagur 2 | Leikur 4 | Texas Scramble (9 holur) eða betri bolti (18 holur), ákveðið á leikdegi |
| Dagur 3 | Leikur 5 | Einliðaleikur, holukeppni (18 holur) |
- Betri bolti: Tveir á móti tveimur. Hver leikur sínum bolta og betra skor liðsins á holunni gildir.
- Greensome: Báðir slá af teig, liðið velur betra teighöggið og síðan slá leikmenn til skiptis þar til boltinn er kominn í holu.
- Texas Scramble: Báðir slá hvert högg, liðið velur besta boltann og báðir slá þaðan næsta högg.
Stigagjöf
Í boði eru 24 stig og 12,5 stig þarf til að vinna.
| Leikir | Fjöldi | Stig/leik | Samtals |
|---|---|---|---|
| Leikir 1–4 (tveggja manna lið) 4 umferðir × 3 leikir | 12 | 1 | 12 |
| Leikur 5 (einliðaleikur) | 6 | 2 | 12 |
| Alls | 18 | 24 |
- Hver leikur gildir jafnt, hvort sem hann er 9 eða 18 holur.
- Jafntefli í leik: hvort lið fær helming stiganna. Engar aukaholur.
- Jafntefli í keppninni (12–12): Þá ræður hvor kapteinninn safnaði fleiri stigum í þeim leikjum sem hann spilaði í keppninni. Ef enn er jafnt endar keppnin í jafntefli.
Kapteinar, liðaval og pörun
Kapteinarnir verða tilkynntir á fundi þegar við komum á staðinn, með bjór í hönd. Þeir velja síðan í lið og leikstjóri kynnir reglurnar um pörun fyrir fyrsta daginn.
Pörun: Í ár er twist á því hvernig pörun fer fram. Kapteinarnir fá að vita meira þegar búið er að velja í lið.
Forgjöf
Leikforgjöf er reiknuð út frá teigunum sem leikið er af og GameBook sér um útreikninginn. Að öllu óbreyttu spilum við af bláum teigum nema leikstjóri tilkynni annað fyrir hvern hring.
Palmares er þrjár 9 holu lykkjur og lengdin af bláum teigum fer eftir því hvaða tvær eru spilaðar saman.
| Samsetning | Bláir teigar (m) |
|---|---|
| Alvor + Lagos | 5.659 |
| Alvor + Praia | 5.410 |
| Lagos + Praia | 5.333 |
| Til samanburðar: Grafarholt | 5.478 |
Reglur sem gilda í öllum leikjum
- Leit að bolta: 3 mínútur. Ekki eyða endalausum tíma í leit. Takið tímann ef þörf krefur.
- Gimmie. Ekki spyrja hvort pútt sé gefið. Ef það er ekki gefið þá klárar þú holuna. Andstæðingur má gefa pútt af hvaða fjarlægð sem er.
- Gefið pútt verður ekki tekið til baka, jafnvel þó leikmaðurinn pútti samt og missi.
- Ef þú ert búinn að sprengja holuna og ert ekki að bæta skor félaga þíns ertu hvattur til að taka upp, til að halda leiknum gangandi.
- Út af vallarmörkum (OB). Ef það er augljóst að bolti fór út af, sláðu varabolta. Ef varabolti gleymist gildir regla 4, svo enginn þarf að ganga til baka.
- Týndur bolti. 2 högg í víti og þú mátt láta falla á brautinni. Ef boltinn týndist áður en hann náði brautinni máttu færa þig þar sem brautin byrjar.
- Vítasvæði (vatn o.fl.) fylgja venjulegum golfreglum.
- Skráning í GameBook. Hvert lið hefur einn sem skráir skor í GameBook. Bæði lið staðfesta stöðuna í leiknum á hverri flöt áður en farið er á næsta teig.
- Færsla. Leyfilegt er að færa bolta um skorkortslengd á öllum brautum og um púttershaus á grínum. Við færslu má þrífa bolta.
Úrskurðir og deilur
Leikstjóri hefur síðasta orðið og úrskurðum hans verður ekki áfrýjað.
- Ef upp kemur ágreiningur þarf að gera athugasemd áður en slegið er af næsta teig. Eftir það stendur niðurstaða holunnar.
- Allt sem þessar reglur ná ekki yfir fylgir almennum golfreglum.
Aukareglur
- Tapliðið borgar: Eftir hverja umferð kaupir liðið sem tapaði fyrsta drykkinn fyrir liðið sem vann.
- Tie breaker: Ef liðin eru jöfn eru borin saman stigin sem kapteinarnir tóku þátt í að skila inn. Ef enn er jafnt endar keppnin í jafntefli.
Keppendur
Þeir sem eru með í ferðinni.
Ferðin
Vellirnir
Vellirnir sem eru í boði í ferðinni. Þeir birtast í fellilista þegar þú setur upp umferð, og holufjöldinn fylgir með.